Dagsferð 28.jan 2012
Laugardaginn 28.janúar 2012 verður farin dagsferð á vegum ferðanefndar Eyjafjarðardeildar f4x4. Ætlunin er að aka upp á Torfufell (eða eins langt og bílar drífa og ganga svo afganginn). Vatnahjallavegur verður ekinn og þess vegna betra að vera á negldum hjólbörðum. Lagt verður af stað frá Shell Hörgárbraut kl. 9.00. Nánari upplýsingar og fréttir af veðri og færð birtast á spjallvef f4x4.is
ferðanefnd
Ritað 23 Jan 2012. Höfundur Formaður
Þrettándagleði í Réttartorfu
Þrettándagleði verður í Réttartorfu laugardagskvöldið 14.janúar 2012. Nú í ár verður gleðin fjölskylduvæn og börn velkomin. Lagt verður af stað í ferðina á laugardagsmorgni frá Shell Hörgárbraut kl. 10.00. Kveikt verður í brennu, flugeldum skotið á loft og svo er skemmtinefnd búin að lofa leikjum og skemmtiatriðum og óskar eftir því að Stigasleðar verði með í för.
Þeir sem vilja taka forskot á sæluna og mæta á föstudagskvöldi verða að rotta sig saman og ákveða sjálfir hvenær þeir leggja af stað. Ekki er ætlast til að menn skemmti sér á fjölskylduvænan máta á föstudagskvöldi.
Skálanefnd vill minna menn á að greiða skálagjöld kr 1500 fyrir nóttina.
Spjallþráður á f4x4.is hefur verið stofnaður svo menn geti skráð sig
fh skemmti- ferða og skálanefndar
formaðurinn
Ritað 05 Jan 2012. Höfundur Formaður
Ferðafrelsifundur í Kaupangi (Ak)
Ferðafrelsisfundur verður haldinn föstudaginn 20. Janúar kl 20:00. í Kaupangi v/Mýrarveg á Akureyri.
Dagskrá fundarins er m.a.
• Elín Björg Ragnarsdóttir, lögfræðingur. F4x4 fjallar um Hvítbók.
• Einar K. Haraldsson skotveiðimaður talar um þjóðgarða almennt, friðlýst svæði og verndun (takmörkun)
• Sveinbjörn Halldórsson Ferðaklúbbnum 4x4, Aðkoma frjálsra félagasamtaka að skipulagi hálendisins.
• Ingimar Árnason útivistamaður heldur fræðsluerindi um Leið norðan Dyngjufjalla (Vikrafellsleið)
• Andrea Þorvaldsdóttir, eða staðgengill, ferðamaður á hestum. Hestaferðir fyrr á tímum, nú og til framtíðar.
• Elvar Árni Lund. Skotveiði og útivistamaður. Talar um frelsi til skotveiða og framtíðarskipulag þjóðgarða og þjóðlendna á Íslandi.
Hver framsögumaður hefur 7 mínútur +/- 3 mínútur.
Félagar, mætið og fylgist með hvað er á döfinni í ferðafrelsismálum.
Munum að hugsa um hugtakið landnýting (samhverfa við landvernd).
Verndaráætlun ætti að nefnast landnýtingaáætlun.
Einnig það að skemma náttúruna eru spjöll af völdum umferðar (er sjaldnast utanvegaakstur)
Sjáumst í Kaupangi Akureyri
Ferðafrelsisnefnd Eyjafjarðardeildar
Ritað 18 Jan 2012. Höfundur Formaður
Félagsfundur Eyjafjarðardeildar
Félagsfundur Eyjafjarðardeildar veður haldinn 3.janúar kl.20.00 í húsnæði Súlna við Hjalteyrargötu
fundarefni:
Ferðanefnd segir frá brennuferðinni og leggur niður ferðir nýársins (dagsetningar staðsetningar)
Skemmtinefnd kyndir undir mönnum fyrir Þrettándagleði og segir frá viðburðum vorannar
Ferðafrelsisnefnd verður með ýtarlegt erindi.
Myndasýning frá brennuefnisferð
Stjórn Eyjafjarðardeildar
Ritað 29 Dec 2011. Höfundur Formaður
Vetrardagskráin
Búið er að setja dagskrána inn undir liðnum Vetrardagskráin í valmyndinni.
Ritað 07 Sep 2011. Höfundur Vefstjóri